Velkomin á heimasíðu FIBRU
FIBRA býður upp á nýja gerð húsa og mannvirkja úr gler- og koltrefjum og með kjarna úr steinull.
FIBRA BÝÐUR UPP Á NÝJA GERÐ BYGGINGAREININGA ÚR TREFJASTYRKTU PLASTI, MEÐ KJARNA ÚR STEINULL, OG ER LOKUÐ Á KÖNTUM.
FIBRA HÚS ERU UM 25-30% ÓDÝRARI EN SAMBÆRILEG HÚS Á MARKAÐI. HÆGT ER AÐ BYRJA Á LITLU HÚSI, SEM SVO AUÐVELT ER AÐ STÆKKA.
FIBRA HÚSIN ERU VIÐHALDSFRÍ OG ENDAST Í NOKKUR HUNDRUÐ ÁR. HÚSIN ERU ALVEG LAUS VIÐ MYGLUSVEPPI OG 15 ÁRA ÁBYRGÐ Á LEKA.
FIBRA HÚSIN ERU EINFÖLD OG FLJÓTLEG Í UPPSETNINGU OG LÉTT Í FLUTNINGUM.
MENGUN OG LOSUN GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDA VIÐ FRAMLEIÐSLUNA ER MUN MINNI EN Í HEFÐBUNDINNI BYGGINGARGERÐ.
FIBRA HÚSIÐ ER ORKUSPARNAÐARHÚS FRAMTÍÐARINNAR.
FIBRA EIGINLEIKAR OG EINKENNI
FIBRA býður upp á nýja gerð byggingareininga. Einingarnar eru úr gler- og koltrefjum, með kjarna úr steinull, og er lokuð á köntum. Byggingareiningarnar geta verið með slithúð og ýmiskonar yfirborð, og nýtast í byggingu húsa og annarra mannvirkja.
Gólf geta verið úr samskonar einingum, eða steinsteypt. Grafinn er skurður og húsveggirnir ganga 80-100 cm niður í skurðinn. Festingar festa hús niður og sandur látinn næst húsveggjum, og grófara efni mokað að. Einnig má steypa gólfplötu. Þá eru veggirnir með festingum sem ganga inn í gólfplötuna.
FIBRA ER NÝSKÖPUN Í BYGGINGARIÐNAÐI
FIBRA EINFALT OG ÓDÝRT
FIBRA einingarnar eru léttar og þægilegar í flutningi. FIBRA húsin eru ódýr og einföld í uppsetningu. Auðvelt er að byrja á litlu húsi, sem svo er hægt að stækka og minnka aftur að vild. Verð á FIBRA húsi verður um 25-30% lægra en á hefðbundnu húsi á markaði. Verð fer eftir frágangi, hvort byggt er á steyptan sökkul eða með FIBRA gólfi, frágangur glugga og fleiri þáttum.
VISTVÆN HÖNNUN OG BYGGING
FIBRA húsin eru vistvæn og öll efni sem eru valin í einingarnar eru afar vönduð og vottuð frá til dæmis Det Norske Veritas og Lloyds. Steinullin sem er notuð í FIBRA húsin er íslensk framleiðsla úr íslensku efni. Gler- og koltrefjarnar sem notaðar eru er um 70% steinefni og 30% hitafast plast miðað við vigt. Hlutfall plastefna er miklu lægri ef miðað er við rúmmál, og því er hlutfall plastefna í FIBRA húsi mjög lágt.
Aukin áhersla á sjálfbæra þróun og umhverfisvitund á síðustu árum hafa ýtt hönnuðum í að þróa vistvænar byggingar. Í vistvænni byggingu er leitast við að hámarka notagildi og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Við hönnun er lögð áhersla á orkumál, efnisval, einangrun, viðhald, staðarval og heilsuvernd. FIBRA uppfyllir kröfur um vistvæna hönnun og er orkusparnaðarhús framtíðarinnar.
"ÞEGAR ÞÚ ERT Í FRÍI, VERTU ÞÁ Í FRÍI"
FIBRA HÚSIN ERU ALGJÖRLEGA VIÐHALDSFRÍ